Friday, November 18, 2005

ísland í dag


í dag er rigning og súld í reykjavíkinnni. veður fyrir nýjar regnkápur sérstaklega ef þær eru bleikar og nýja skó sem eru ótrúlega flottir og eru búnir að bíða eftir mér í 300 ár og fundu mig í hjálpó. ég hef aldrei átt neitt á ævinni sem ég er svona ánægð með.

vei.


ég er orðin eftirsóttasta pían í plássinu.
hef þó alltaf verið það, bara mismikið.

á morgun á guðrún drífa líka skvísa afmæli og við mjási ætlum að fara saman í bæinn á morgun að finna gjöf. ég er búin að ákveða að hann eigi líka afmæli á morgun afþvíað hann átti afmæli 19. sept og fékk enga gjöf frá mér sem var í svipuðum gufuhugleiðingum og venjulega þegar fólk á afmæli.

kæru núverandi, þáverandi, fráverandi afmælisbörn:


ÉG ER MEÐ AFMÆLISFÓBÍU.

sorrí.sb


síðan sem vann ofurspennandi heimasíðukeppni dagsins í dag: HORROR!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home